19. apr. 2013
Hinn 31. mars sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 102 kvartanir frá áramótum.
Á sama tíma árið 2012 höfðu umboðsmanni borist 184 kvartanir og hann hafði tekið upp eitt frumkvæðismál.
Í mars 2013 lauk umboðsmaður athugun sinni á 22 málum. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 35 talsins. Um mánaðamótin mars-apríl voru alls 212 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 206 mál til athugunar. Þá bárust 60 kvartanir og athugun var lokið á 51 máli í mars 2012.
Til baka