16. maí 2012
Hinn 30. apríl sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 218 kvartanir frá áramótum og hann hafði á sama tíma tekið eitt mál til athugunar að eigin frumkvæði.
Á sama tíma árið 2011 höfðu umboðsmanni borist 154 kvartanir og hann hafði tekið upp fjögur frumkvæðismál. Málum hefur því fjölgað um 41,6% miðað við sama tíma í fyrra.
Í apríl 2012 lauk umboðsmaður athugun sinni á 31 máli. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 34 talsins. Um mánaðamótin apríl-maí voru alls 209 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 145 mál til athugunar. Þá bárust 34 kvartanir og athugun var lokið á 29 málum í apríl 2011.
Til baka