26. sep. 2011
Hinn 1. september sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 353 kvartanir frá áramótum og hann hafði á sama tíma tekið sex mál til athugunar að eigin frumkvæði.
Á sama tíma árið 2010 höfðu umboðsmanni borist 248 kvartanir og hann hafði tekið upp sjö frumkvæðismál. Málum hefur því fjölgað um 42,3% miðað við sama tíma í fyrra.
Í ágústmánuði 2011 lauk umboðsmaður athugun sinni á 32 málum. Þar af var einni athugun lokið með áliti. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 61 talsins. Um mánaðamótin ágúst-september voru alls 189 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 139 mál til athugunar. Þá bárust 18 kvartanir og athugun var lokið á 18 málum í ágúst 2010.
Til baka